Válisti háplantna endurskoðaður
Á ársfundi 2008 kynnti Starri Heiðmarsson tillögur Náttúrufræðistofnunar Íslands að endurskoðaðri válistaflokkun háplantna. Válisti var fyrst gefinn út á Íslandi 1996 en þar var metin hætta sem talin var steðja að háplöntum, blað- og runnfléttum, baukmosum og botnþörungum sem teljast til rauðþörunga, gulþörunga, gullþörunga, brúnþörunga og grænþörunga.
Í framhaldi af viðamiklu vöktunarverkefni sem Náttúrufræðistofnun Íslands hefur unnið í samstarfi við grasagarðana í landinu, Lystigarðinn á Akureyri og Grasagarðinn í Reykjavík, þar sem þekktir fundarstaðir háplantna á válista voru heimsóttir, útbreiðsla þeirra kortlögð og stofnstærð metin, hefur válisti háplantna verið endurskoðaður. Tegundirnar eru nú metnar skv. nýjustu skilyrðum IUCN (Alþjóða Náttúruverndarsamtakanna) sem samþykkt voru árið 2000 en þau skilyrði eru nokkuð breytt frá þeim skilyrðum sem giltu þegar fyrsta útgáfa válistans kom út.
Alls voru 79 tegundir háplantna metnar. Flokkarnir sem tegundirnar voru flokkaðar í eru:
– RE (Regionally extinct), útdauðar í náttúrunni – 1 tegund
– CR (Critically endangered), í bráðri hættu – 5 tegundir
– EN (Endangered), í hættu – 8 tegundir
– VU (Vulnerable), í yfirvofandi hættu – 31 tegund
– DD (Data deficient), upplýsingar ófullnægjandi – 4 tegundir
– NT (Near threatened), í nokkurri hættu – 11 tegundir
– LC (Low concern), metin en ekki í hættu – 15 tegundir
– NA (Not applicable), uppfyllir ekki forsendur mats – 4 tegundir
Þær tegundir sem lenda á válista (þ.e. tilheyra flokkunum ER, CR, EN, VU og DD), alls 45 tegundir, leggur Náttúrufræðistofnun til að verði friðlýstar. Samtímis bendir Náttúrufræðistofnun á að nokkrar friðlýstar tegundir lenda utan válista (þ.e. tilheyra flokkunum NT, LC og NA) en það á við um 6 tegundir.
Tillaga Náttúrufræðistofnunar Íslands að válistaflokkun háplantna:
ER, útdauðar í náttúrunni:
Davíðslykill, Primula egaliksensis
CR, í bráðri hættu:
Skeggburkni, Asplenium septentrionale
Mýramaðra, Galium palustre
Mosaburkni, Hymenophyllum wilsonii
Glitrós, Rosa dumalis
Vatnsögn, Tillaea aquatica
EN, í hættu:
Svartburkni, Asplenium trichomanes
Tunguburkni, Blechnum spicant v. fallax
Vorstör, Carex caryophyllea
Trjónustör, Carex flava
Herjólfshár, Danthonia decumbens
Burstajafni, Lycopodium clavatum
Tjarnarblaðka, Persicaria amphibia
Flæðarbúi, Spergularia salina
VU, í yfirvofandi hættu:
Lyngbúi, Ajuga pyramidalis
Ljósalyng, Andromeda polifolia
Ginhafri, Arrhenatheru elatius
Klettaburkni, Asplenium viride
Hrísastör, Carex adelostoma
Safastör, Carex diandra
Heiðastör, Carex heleonastes
Gljástör, Carex pallescens
Hlíðaburkni, Cryptogamma crispa
Skógelfting, Equisetum sylvaticum
Sandlæðingur, Glaux maritima
Flæðalófótur, Hippuris tetraphylla
Fitjasef, Juncus gerardii
Stinnasef, Juncus squarrosus
Rauðkollur, Knautia arvensis
Munkahetta, Lychnis flos-cuculi
Naðurtunga, Ophioglossum azoricum
Súrsmæra, Oxalis acetosella
Stefánssól, Papaver radicatum ssp. stefanssonii
Flóajurt, Persicaria maculosa
Blæösp, Populus tremula
Maríulykill, Primula stricta
Þyrnirós, Rosa pimpinellifolia
Lónajurt, Ruppia maritima
Fjallkrækill, Sagina caespitosa
Hreistursteinbrjótur, Saxifraga foliosa
Blátoppa, Sesleria albicans
Línarfi, Stellaria borealis
Rauðberjalyng, Vaccinium vitis-idaea
Laugadepla, Veronica anagallis-aquatica
Giljaflækja, Vicia sepium
DD, upplýsingar ófullnægjandi:
Keilutungljurt, Botrychium minganense
Lækjabrúða, Callitriche brutia
Hveraaugnfró, Euphrasia calida
Hagabrúða, Valeriana sambucifolia
Þær sex tegundir sem eru friðlýstar en eru ekki á válista eftir endurskoðun eru:
Dvergtungljurt, Botrychium simplex
Villilaukur, Allium oleraceum
Ferlaufasmári, Paris quadrifolia
Eggtvíblaðka, Listera ovata
Blóðmura, Potentilla erecta
Skógfjóla, Viola rivinana
Válisti 1 - Plöntur (frá 1996, pdf)