Samstarf á milli Háskólans á Akureyri og Náttúrufræðistofnunar Íslands
Á ársfundi voru undirritaðir tveir samstarfssamningar milli Háskólans á Akureyri og Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Í fyrri samningnum, almennum rammasamningi, er fjallað um að verkefni Náttúrufræðistofnunar og rannsóknir og kennsla Háskólans tengjast á margan hátt. Samstarfsaðilarnir hafa sameiginlega hagsmuni af því að efla rannsóknir á náttúru landsins, að rannsóknastarfið sé af þeim gæðum sem best gerist, efla menntun í viðkomandi greinum vísinda, auka kynningu á íslenskum umhverfismálum, samnýta sem best aðstöðu og færni sem til er á hvorum stað og sameinast um uppbyggingu eftir því sem við á.
Til þess að ná ofangreindum markmiðum munu samningsaðilar eiga samstarf um eftirfarandi:
- Að efla kennslu á háskólastigi á sviði náttúruvísinda.
- Að vekja áhuga nemenda á fræðasviðum og rannsóknum Náttúrufræðistofnunar.
- Að stuðla að því að á Náttúrufræðistofnun starfi sérfræðingar með hæfni til kennslu á háskólastigi, sem sinni kennslu við Háskólann auk rannsóknastarfa á vegum Náttúrufræðistofnunar. Sérfræðingar Náttúrufræðistofnunar, með vinnuskyldu við Háskólann, hafi aðgang að framgangskerfi og rannsóknasjóðum HA.
- Að gera sérstaka samninga um kennslu og þjálfun nemenda eftir því sem tilefni gefst til.
- Að leggja áherslu á verkefni sem fela í sér uppbyggingu nýrrar færni, sem vænta má að gagnist við rannsóknir á íslenskri náttúru en hafa jafnframt vísindalegt gildi og tengjast eðlilegu starfi háskóla og/eða Náttúrufræðistofnunar.
- Að semja um samnýtingu á rannsóknatækjum og aðstöðu.
Markmið síðari samningsins er svo öllu sértækara. Það er að efla formlegt samstarf milli Náttúrufræðistofnunar og Háskólans á Akureyri á sviði sameindaerfðafræði og er samstarfið fólgið í að reka sameiginlega rannsóknastofu í sameindaerfðafræði. Einnig deila samningsaðilar með sér sérfræðingi sem er umsjónarmaður rannsóknastofunnar.