Skjaldburkni (Polystichum lonchitis)
Skjaldburkni (Polystichum lonchitis)
![Mynd af Skjaldburkni (Polystichum lonchitis) Mynd af Skjaldburkni (Polystichum lonchitis)](https://myndir.ni.is/floraisl/hapl/polyslon1y.jpg)
Útbreiðsla
Víða um land þar sem snjóþungt er en getur ekki talist algengur (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
Búsvæði
Hann vex í snjódældabollum, gilskorningum, grjóturð eða jafnvel í hraunsprungum (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).
Lýsing
Meðalhár burkni (12–30 sm) með stinn, sígræn, fjöðruð og skarptennt blöð.
Blað
Blöðin vaxa upp af sterkum jarðstöngli, sígræn, fjöðruð, með 20–40 skarptenntum smáblöðum sem eru skakktígullaga, 1–1,5 sm á lengd, lengst um miðju blöðkunnar. Öll blöðin eins (Hörður Kristinsson 1998).
Blóm
Gróblettir í tveim röðum neðan á smáblöðunum, einkum á efri enda blöðkunnar. Gróhula yfir blettunum meðan þeir eru enn ungir (Hörður Kristinsson 1998).
Greining
Líkist skollakambi en er auðþekktur frá honum á tenntum smáblöðum.
Höfundur
Was the content helpful Back to top
Thank you!