Hagamaríustakkur (Alchemilla subcrenata)
Hagamaríustakkur (Alchemilla subcrenata)
![Mynd af Hagamaríustakkur (Alchemilla subcrenata) Mynd af Hagamaríustakkur (Alchemilla subcrenata)](https://myndir.ni.is/floraisl/hapl/alchesub1b.jpg)
Búsvæði
Ræktarland og tún, hagar og skurðir. Oftast þar sem nægur raki og næringarefni (Lid og Lid 2005).
Lýsing
Fremur stórvaxin jurt (30–60 sm) með smáum gulgrænum blómum og stórum handstrengjóttum blöðum, með reglulega tenntum sepum.
Blað
Grófgerð planta með háa og beina blaðstilka. Hár útstæð, gisin og oftast nokkuð niðurvísandi á blaðstilkum og neðri hluta stönguls. Blöð stór, þunn og oftast gulgræn, oftast með djúpar hrukkur, jafnhærð á neðra borði. Strjál hár í fellingunum á efra borði, stundum að hluta hárlaus. Blöð skarp nýrlaga með þröngu gapi við blaðstilkinn, blaðseparnir við stilkinn jafnframt oft uppsveigðir. Blaðsepar sjö til níu, breiðir. Miðsepinn hefur breiðar, þríhyrningslaga tennur, misstórar, þær stærstu oftast á ytri hluta sepans (Lid og Lid 2005).
Blóm
Blómin í kvíslskúfum, fjórdeild, sjaldan fimmdeild, lítil, græn til gulgræn, án krónublaða. Bikarinn með utanbikarblöð. Fjórir fræflar. Eitt fræblað. Blómstilkurinn hárlaus (Lid og Lid 2005).
Aldin
Aldinið er hneta (Lid og Lid 2005).
Höfundur
Was the content helpful Back to top
Thank you!