Útbreiðsla
Hefur aðeins fundist á nokkrum jarðhitasvæðum sunnan- og vestanlands. Líklega einlend tegund.
Búsvæði
Jarðhitasvæði, við hveri.
Lýsing
Hávaxnari en aðrar íslenskar augnfrór, stöngull er uppréttur og verður allt að 20 cm hár. Greinar eru bogsveigðar-uppréttar eða uppsveigðar.
Blað
Lauf eru smá, fölgræn og stöku sinnum brún- eða purpuralit.
Blóm
Blómin eru oftast hvít og mynda (3°–) 4°–9°horn við plöntuna/stilkinn.
Válisti
DD (vantar gögn)
Ísland |
Heimsválisti |
---|
DD |
NE |
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Hveraaugnfró er á válista í hættuflokki DD (upplýsingar ófullnægjandi).
Válisti 1996: KHveraaugnfró er á válista í hættuflokki EN (í hættu).
Verndun
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Was the content helpful
Back to top