Fjörukál (Cakile maritima)
Fjörukál (Cakile maritima)
![Mynd af Fjörukál (Cakile maritima) Mynd af Fjörukál (Cakile maritima)](https://myndir.ni.is/floraisl/hapl/cakilarc2b.jpg)
![Mynd af Fjörukál (Cakile maritima) Mynd af Fjörukál (Cakile maritima)](https://myndir.ni.is/floraisl/hapl/cakilarc1b.jpg)
Útbreiðsla
Fjörukálið er algengast um vestanvert landið, það vex í stórum breiðum víða á Suður- og Vesturlandi en er fágætara norðanlands. Fræin eru búin til þess að fljóta og berast með sjónum á nýjar sandfjörur. Þar sem plantan er einær getur það flust nokkuð til meðfram ströndinni frá ári til árs (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
Almennt
Nytjar
Fjörukálið er með góðu kálbragði og hið besta grænmeti. Enginn önnur villt, íslensk tegund hefur jafn mikið kálbragð (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
Búsvæði
Vex helst í fjörusandi og á sjávarkömbum, eingöngu við sjó (Hörður Kristinsson 1998).
Lýsing
Fjörukál er einær jurt, um 10–40 sm á hæð með fagurgræn flipótt blöð. Blómstrar hvítum blómum í júní–júlí.
Blað
Laufblöðin eru hárlaus, stilkuð, grófsepótt eða flipótt, lensulaga eða egglensulaga, oft 3–8 sm á lengd (Hörður Kristinsson 1998).
Blóm
Blómin standa í klösum á stöngulendunum, 1,2–1,7 mm í þvermál, fjórdeild. Krónublöðin hvít eða fölfjólublá, 7–10 mm á lengd, ávöl eða buguð í endann, nöglin mjó. Bikarblöðin egglaga eða sporbaugótt, gulleit með glærum himnufaldi, um 3 mm á lengd. Fræflar sex, ein löng og mjó fræva (Hörður Kristinsson 1998).
Aldin
Aldinin nefnast liðaldin. Það rofnar sundur um liðina við þroskun og fylgir hluti aldinsins hverju fræi og eykur sjófærni þess (Hörður Kristinsson - floraislands.is). Aldinin verða um 1,5–2 sm á lengd og 4–5 mm á breidd er þau eru fullþroskuð. Þau eru stilkuð, með þverskoru neðan við miðju (Hörður Kristinsson 1998).
Greining
Fjörukálið þekkist frá skriðnablómi á hárlausum blöðum og á kjörlendi sínu (Hörður Kristinsson 1998).
Höfundur
Was the content helpful Back to top
Thank you!