Bjúgstör (Carex maritima)
Bjúgstör (Carex maritima)
![Mynd af Bjúgstör (Carex maritima) Mynd af Bjúgstör (Carex maritima)](https://myndir.ni.is/floraisl/hapl/carmarit1g.jpg)
Útbreiðsla
Finnst víða. Á miðhálendinu er bjúgstörin algeng upp í 900 m hæð en hæstu fundarstaðir eru á Hólafjallsleið við Eyjafjörð í 1020 m og í Vonarskarði í 950 m (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
Búsvæði
Rakir, sendnir árbakkar og eyrar, deigir sandar við sjó og inni á öræfunum.
Lýsing
Fremur lágvaxin stör (8–20 sm). Öxin mynda keilulaga hnapp, stráin oftast bogin. Blómgast í júní.
Blað
Stráið nær sívalt, oftast kengbogið. Blöðin mjó, um 1–1,5 mm, rennulaga neðan til en þrístrend í endann. Myndar mjög langar, greindar og skriðular renglur, einkum þegar hún vex í sandi (Hörður Kristinsson 1998).
Blóm
Nokkur, þéttstæð öx sem mynda keilulaga hnapp (1,5x1 sm), líkt og eitt ax væri. Karlblóm efst í hverju axi en kvenblóm neðar. Axhlífar brúnar, himnukenndar, með skarpri miðtaug sem gengur út í brodd. Hulstrið gljáandi, grænt, einkum neðst, oft brúnt ofan til, með rennilegri alllangri trjónu. Tvö fræni (Hörður Kristinsson 1998).
Greining
Líkist engri annarri íslenskri tegund.
Höfundur
Was the content helpful Back to top
Thank you!